Glæsilegt Ís-Landsmót á Svínavatni

Frábært Ís-Landsmót var haldið á Svínavatni um helgina og er þetta án vafa stærsta ísmót sem haldið hefur verið með afburða góðum hrossum. Veðrið var frábært, ísinn góður og stóðst dagskráin hjá mótshöldurum og knöpum mjög vel, sem eiga þakkir skildar fyrir vel heppnaðan dag. Mótið hófst við sólarupprás kl. 9:30 og lauk um 5:30 eða heldur fyrr en áætlað var. Sýningar voru 212 hjá 110 knöpum og keppt var í A og B flokki gæðinga og tölti.


Hestakostur á mótinu var gríðalega góður, þarna voru gæðingar í hverju holli, bæði hátt dæmd keppnis- og kynbótahross sem og nýjar stjörnur og því sannarlega mikið að sjá fyrir áhugasama hestamenn á þessu sterkasta ísmóti vetrarins.


 Í A-flokk gæðina sigraði Vignir Siggeirsson sem átti frábæra sýningu á heimaræktuðum gæðingi sínum Óm frá Hemlu, en sá rekur ættir sínar norður yfir heiðar þar sem faðir hans er frá Vatnsleysu og móðirin undan Snældu-Blesa. Í öðru sæti var stóðhesturinn Fróði frá Staðartungu sem er svo sannarlega norðlenskur og sá þriðji var Seyðir frá Hafsteinsstöðum.


Hans Kjerúlf sigraði B-flokkinn á Sigur frá Hólabaki í Húnavatnssýslu sem var á heimaslóðum og þá sigraði hann einnig töltið eftir að Freyðir frá Hafsteinsstöðum reif undan sér skeifu fyrir síðustu yfirferðina en Freyðir var lang efstur eftir hæga töltið og hraðabreytingar. Annar var Kjarni frá Auðholtshjáleigu og þriðja var glæsihryssan Gola frá Þjórsárbökkum og Lena Zielinski sem einnig urðu í öðru sæti í töltinu. Þriði í töltinu varð hinsvegar gæðingurinn Leiknir frá Vakurstöðum sem nú sem endranær sýndi hvers konar gullgripur hann er.  

Frá Flugumýri fór Páll Bjarki með stóðhestana og gæðingana sína þá Hreim frá Flugumýri og Gletting frá Steinnesi. Stóðu þeir sig vel og enduðu Glettingur og Páll í 6. sæti í A- flokk en Hreimur var rétt fyrir utan úrslitin með einkunnina 8,47 eftir forkeppni.

 

 

 

 

 

 

 

 Hér eru heildarúrslit af mótinu

 1 Hans Friðrik Kjerúlf Sigur frá Hólabaki  6v. sótróður stjörn 8,74       
 2 Árni Björn Pálsson Kjarni frá Auðsholtshjáleigu  6v.  jarpur 8,67       
 3 Lena Zielinski Gola frá Þjórsárbakka  6v.  rauðstjörnótt 8,66       
 4 Jakob Svavar Sigurðsson Kaspar frá Kommu  8v.  rauðglófextur 8,60       
 5 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Frægð frá Auðholtshjáleigu  6v.  móálótt 8,53       
 5 Sigurður Sigurðarson Gerpla frá Steinnesi rauðstj.   8v.  rauðstjörnóttur 8,49       
 7 Sölvi Sigurðarson Glaður frá Grund 8v  rauðglófextur stj 8,43       
 8 Bylgja Gauksdóttir Þöll frá Garðabæ  5v.  bleik 8,31       
    
 A - Flokkur  - Úrslit   
      
 Nr Knapi  A-flokkur Hestur Aldur litur Samtals
 1. Vignir Siggeirsson Ómur frá Hemlu  8v.  rauður 8,82
 2. Jón Pétur Ólafsson Fróði frá Staðartungu  7v.  bleikálóttur 8,54
 3. Sölvi Sigurðarson Seyðir frá Hafsteinsstöðum  8v.  rauður 8,47
 4. Eyjólfur Þorsteinsson Ögri frá Baldurshaga   jarpur 8,44
 5. Elvar Þormarsson Bylgja frá Strandarhjáleigu  7v.  móálótt 8,43
 6. Páll B. Bálsson Glettingur frá Steinnesi  8v grár 8,39
 7. Hinrik Bragason Straumur frá Breiðholti   7v. rauðtvístjörn 8,30
 8. Steingrímur Sigurðsson Sturla frá Hafsteinsstöðum  10v.  rauðstjörnóttur 7,87


Tölt - Úrslit   
      
Holl Nr Knapi Hestur Aldur litur Samtals
 1. Hans Friðrik Kjerúlf Sigur frá Hólabaki 6v  sótróður 8,00
 2. Lena Zielinski Gola frá Þjórsárbakka  6v.  rauðstjörnótt 7,83
 3. Valdimar Bergstað Leiknir frá Vakurstöðum  9v.  brúnn 7,67
 4. Ólafur Magnússon Gáski frá Sveinsstöðum  11v.  brúnn 7,67
 5. Artemisia Bertus Rósant frá Votmúla I  11v.  rauðstjörnóttur 7,50
 6. Sigurður Sigurðarson Freyðir frá Hafsteinsstöðum  12v grár 7,50
 7. Þórdís Erla Gunnarsdóttir Pipar - Sveinn  6v. brúnn 7,33
 8. Gústaf Ásgeir Hinriksson Knörr frá Syðra Skörðugili 13v bleikálótt 6,83
 9. Bylgja Gauksdóttir Hera frá Auðsholtshjáleigu  6v.  brún 6,83
 10. Teitur Árnason Váli frá Vestmannaeyjum 10v  rauður  5,83

« Til baka