Hestasýningar á Flugumýri
Þar sem sagan og hesturinn sameinast

Hestasýning –sögukynning

Hestasýning á Flugumýri er kynning og sýning á íslenska hestinum, þarfasta þjóninum fyrir land og þjóð í aldanna rás.
Þar gefst kostur á að kynnast fjölhæfni hans og kostum í sínu náttúrulega umhverfi.
Í dag skipar hesturinn veglegan sess í tómstundalífi fólks og í kringum hann hefur skapast fjölbreytt menning og sífellt fleiri kjósa að byggja lífsviðurværi sitt á honum eins og þú munt sjá og kynnast á hrossaræktunarbúinu Flugumýri.

Fjölskyldan að Flugumýri II býður upp á heimsókn á hrossaræktarbú sitt, þar sem gestum gefst kostur á að kynnast íslenska hestinum, fjölhæfni hans og kostum í sínu náttúrulega umhverfi. Hún kynnir fyrir þeim daglegt líf á búinu og sýnir þeim hestinn í reið.

Hestasýning og heimsókn á hrossaræktarbúið í 1-2 klst. allt eftir tíma hvers hóps fyrir sig,
Fjölskyldan kynnir og sýnir íslenska hestinn í reið, þar sem gangfjölhæfni hans og kostir fá notið sín. En auk fets, brokks, og stökks býr  íslenski hesturinn líka yfir hinu einstaka tölti og fljúgandi skeiði. Þau kynna ræktunarstarf sitt og daglegt líf á búinu auk þess sem gestir fá innsýn í venjulegt íslensk sveitaheimili.
Farið er yfir sögu hestsins og hvaða sess hann skipar í íslensku mannlífi í dag.Þá er saga staðarins  einnig  rakin og hvernig nafngift hans og saga tengist fyrstu kappreiðum Íslandssögunnar, á landnámstíð.

Innifalið í hestasýningum er kaffi, te og heimabakað meðlæti.
Einnig er í boði hestasýning og hádegisverður, ásamt kaffi og te.

Gestum gefst kostur á að fara á hestbak og kynnast íslenska hestinum í reið (gegn aukagjaldi).

Fjölskyldan á Flugumýri hefur unnið til fjölda verðlauna, bæði sem ræktendur og keppendur á íslenska hestinum, og leggur mikinn metnað í að gera heimsóknina sem eftirminnilegasta.