Hlynur frá Ytra-Vallholti
IS2001157590 Hlynur frá Ytra-Vallholti
F: Sjóli frá Þverá.JPG) FF: Sólon frá Hóli MF: Dimmalimm frá Sleitustöðum M: Kúnst frá Ytra- Vallholti Fm: Freyr frá Flugumýri M: Lukka frá Ytra-Vallholti
Hlynur er stór og myndarlegur hestur með mikin reiðhestsbrag. Hann er ofsalega góður reiðhestur, hans aðall er ofsalega mjúkt og fallegt tölt sem er hreint yndi að sitja á. Skeiðið er einnig efnilegt og verður mjög gott með réttri þjálfun. Hlynur hefur einig afar fallegan höfðuburð og mikla reisingu. Hann er kjörinn fyrir riðmann sem er að leita sér að frábærum og vel tömdum úrvals reiðhesti, hann ætti einnig að henta vel í fimmgangs og töltkeppni. Hlynur er sú gerð af hrossi sem flestir vilja eiga, hann er stór og öflugur með gríðar gott tölt og efnilegt skeið.
« Til baka |