Hestaferðir og Hestaleiga í Skagafirði
Hestaleiga - sögukynning:
Í boði eru hestaferðir, bæði klukkustundarferðir og dagsferðir hér um nágrennið.
Leiðsögn byggist á grunnreiðkennslu og fræðslu um hestinn sem og fræðslu um sögu staðarins. Bæði fyrstu kappreiðum Íslandssögunnar, Fluguskeiði, en það rann hryssan Fluga sem bærinn er kenndur við og
Flugumýrarbrennu er varð á Sturlungaöld.
Riðið er um merkar söguslóðir sem varðveist hafa frá því um 1253 en þá var eitt mesta níðingsverk Sturlungaaldar framið, er veist var að Gissuri Þorvaldssyni og bær hans brenndur á meðan brúðkaupsveisla stóð þar yfir.
Hestaleiga - Stuttar hestarferðir
Klukkustundarferð:
Leiðsögn byggist á grunnreiðkennslu og fræðslu um hestinn.
Tveggja klukkustunda ferð:
Leiðsögn byggir á grunnreiðkennslu og fræðslu um hestinn. Riðið er um söguslóðir.
Hestaleiga - lengri hestaferðir og kennsla
Hálfsdagsferð á hestbaki:
Innifalin er grunnreiðkennsla og fræðsla um hestinn.
Riðið er um merkar söguslóðir og saga staðarins rakin.
Einnig er hægt að panta hálfsdagsferð og léttan hádegisverð á eftir þ.e. súpu, salöt og brauð.
Dagsferð á hestbaki:
Lagt er af stað um kl. 10 og komið heim síðdegis.
Innifalin er leiðsögn sem byggist á grunnreiðkennslu og fræðslu um hestinn.
Þá er einnig farið um söguslóðir og saga staðarins rakin.
Innifalið er nesti sem er snætt úti í náttúrunni og þegar heim er komið er boðið upp á kaffi, te og meðlæti.
Vinsamlegast hafið samband við heimilisfólkið á Flugumýri til að fá upplýsingar um verð og pantanir á hestaleigu.
