Gönguleiðir

Fjalllendið allt umhverfis láglendið í Skagafirði býður upp á skemmtilegar óbyggðaferðir, miserfiðar allt eftir óskum hvers og eins. Tilvalið er að ganga á Molduxa (706 m.y.s.) fyrir ofan Sauðárkrók og Tindastól (989 m.y.s.) við utanverðan Skagafjörð. Einnig er vinsælt að ganga á Mælifellið. Gefin hafa verið út göngukort af vestanverðum Skagafirði og eru þar fjölmargar leiðir merktar inn á auk leiðarlýsinga.

Mælifellshnjúkur 

Á Nöfunum við kirkjugarðinn, rétt þar hjá sem Kirkjustígurinn liggur upp á þær, stendur hringsjá, sem Ingólfur Nikódemusson setti upp ásamt Rotaryklúbbi Sauðárkróks. Þar er gott útsýni yfir bæinn, út á sjó, fram í fjörð og ufrum.

Í Sauðárgili er gangstígur upp með Sauðánni og gangbrýr yfir hana. Stígurinn liggur á árbakkanum um Litlaskóg og upp í skógræktargirðinguna í Skógarhlíð. Prílur eru yfir girðingar á þeirri leið. Frá skógræktinni er gengt upp Skógarhlíðina, upp á Brúnir. Þar er vegslóði, sem liggur frá golfvellinum við Hlíðarenda og suður upp í Molduxaskarð. Gönguleið er greiðfær með Sauðánni niður úr gilinu, yfir Skagfirðingabraut og alveg niður að Tjarnartjörn. Á veturna er leiðin áfram onettir líka greiðfær, en vegna mýrlendis er hún aðeins stígvélafær á sumrin.

Í Borgarmýrum, sem Sauðáin rennur um, er mikið líf votlendisfugla. Við Tjarnartjörn, sem áður hét Flæðitjörn, er Flæðigerði, félagssvæði Hestamannafélagsins Léttfeta. Í litlu koti við Tjarnartjörn, Tjörn, bjó Theodór Friðriksson um skeið á Sauðárkróksárum sínum og gekk þá til vinnu upp á Sauðárkrók.

Á Borgarsandi, frá Fornós og niður í Ós, er gott gönguland allt árið. Á Móunum utarlega, upp af Kristjánsklauf, er gönguleið og akfær vegur, hin gamla leið yfir Kolugafjall frá Sauðárkróki, upp að Sauðárkróksrétt og Gönguskarðsárvirkjun. Þar fossar Gönguskarðsáin í hrikalegu og fögru gljúfri. Leiðin liggur framhjá golfvellinum við Hlíðarenda, Hæringsbúðum og áfram upp að Tungu. Til þess að komast að henni verður þó að vaða Gönguskarðsána. Áður var farið yfir ána í Gönguskarðinu við ármótin neðan við Skarðarétt.

Vert er að geta þess að hér er yfirleitt ekki um göngustíga að ræða, heldur gönguleiðir. Á Nöfunum ofan við bæinn eru víða girðingar sem klofa þarf yfir og víðar um Móana eru svipaðir farartálmar. Gönguleiðir úr bænum bænum og upp á Móa eru um klaufirnar og Kirkjustíginn og um Sauðárgil.