Landsmót hestamanna

Fjölskyldan á Flugumýri II átti fjóra fulltrúa á Landsmóti 2004.

Páll Bjarki sýndi tvær hryssur á kynbótasýningu og hann og elstu börnin þrjú kepptu öll sem fulltrúar hestamannafélagsins Stíganda í Skagafirði, hvert í sínum flokki.

Kynbótahryssurnar voru Nótt frá Flugumýri og Prinsessa frá Sigríðarstöðum.
Þær hafa nú báðar verið seldar.

Landsmótshross Flugumýri
Eyrún og Hrund, Páll og Stakkur, Ásta og Rakel

Í A-flokki gæðinga keppti Páll Bjarki á Stakki frá Halldórsstöðum. Stakkur er undan Huga frá Hafsteinsstöðum og Sylvíu frá Syðstu-Grund. Eftir undankeppni voru þeir Páll Bjarki og Stakkur í 8. sæti inn í milliriðil, með einkunnina 8,65. Þeir voru síðan efstir í B-úrslitum.

Ásta Björk keppti í ungmennaflokki, á hryssunni Rakel frá Flugumýri.- Rakel er undan Spuna frá Miðsitju og Rimmu frá Flugumýri.

Eyrún Ýr keppti í unglingaflokki, á Hrund frá Þorkelshóli. Eftir undankeppni voru þær í 23. sæti inn í milliriðil, með einkunnina 8,15. Eftir milliriðla voru þær komnar í 11. sæti, með einkunnina 8,25 og komust þar með í B-úrslit.

Sigurður Rúnar keppti í barnaflokki, á Stefni frá Flugumýri. Faðir Stefnis er Hilmir frá Sauðárkróki og móðir Slaufa frá Flugumýri.

Landsmót hestamanna 2006 - Dagskrá mótsins
Landsmót hestamanna árið 2006 verður haldið að Vindheimamelum í Skagafirði dagna 26 júní til 2. júlí. 

Mánudagur 26. júní:
Aðalvöllur:
11:00-12:30 Forkeppni ungmennaflokkur
12:30-13:00 Hlé
13:00-14:30 Forkeppni ungmennaflokkur frh.
14:30-15:30 Hlé
15:30-16:30 Forkeppni unglingaflokkur
16:30-17:00 Hlé
17:00-18:30 Forkeppni unlingaflokkur frh.

Kynbótavöllur:
08:00-12:00 Dómar/hryssur 7v og eldri
12:00-13:00 Hlé
13:00-13:30 Dómar/hryssur 7v og eldri
13:30-15:30 Dómar/hryssur 6 vetra
15:30-16:00 Hlé
16:00-18:00 Dómar/hryssur 6 vetra


Þriðjudagur 27. júní:
Aðalvöllur:
09:00-10:30 Forkeppni barnaflokkur
10:30-11:00 Hlé
11:00-12:00 Forkeppni barnaflokkur frh.
12:00-13:00 Hlé
13:00-15:30 Forkeppni B-flokkur gæðinga
15:30-16:00 Hlé
16:00-19:00 Forkeppni B-flokkur frh.

08:00-12:00 Dómar/hryssur 5 vetra
12:00-13:00 Hlé
13:00-15:30 Dómar/hryssur 5 vetra
15:30-16:00 Hlé
16:00-16:30 Dómar/hryssur 5 vetra
16:30-19:00 Dómar/hryssur 4 vetra


Miðvikudagur 28. júní:
Aðalvöllur:
09:00-10:30 Forkeppni A-flokkur gæðinga
10:30-11:00 Hlé
11:00-12:30 Forkeppni A-flokkur frh.
12:30-13:00 Hlé
13:00-15:00 Forkeppni A-flokkur frh.
15:00-15:30 Hlé
15:30-18:00 Milliriðlar Ungmennaflokkur

Kynbótavöllur:
08:00-11:00 Dómar/hryssur 4 vetra
11:00-12:00 Dómar/stóðhestar 4 vetra
12:00-13:00 Hlé
13:00-14:30 Dómar/stóðhestar 4 vetra
14:30-15:30 Dómar/stóðhestar 5 vetra
15:30-16:00 Hlé
16:00-17:00 Dómar/stóðhestar 5 vetra og 6 vetra
17:00-20:00 Dómar/stóðhestar 7 vetra og eldri


Fimmtudagur 29. júní:
Aðalvöllur:
08:00-10:00 Yfirlitssýning kynbótahrossa
  - Hryssur 7 vetra
  - Hryssur 6 vetra
10:00-12:00 Milliriðlar Barnaflokkur
12:30-15:00 Yfirlitssýning kynbótahrossa
  -Hryssur 6 vetra
  -Hryssur 5 vetra
15:00-15:30 Hlé
15:30-17:45 Yfirlitssýning kynbótahrossa
  -Hryssur 5 vetra
  -Hryssur 4 vetra
17:45-18:00 Hlé
18:00-20:00 Forkeppni Tölt
20:00-21:00 Hlé
21:00 Mótssetning - hópreið


Föstudagur 30. júní:
Aðalvöllur:
08:00-10:30 Milliriðlar B-flokkur gæðinga
10:30-12:00 Yfirlitssýning kynbótahrossa
  -Stóðhestar 4 vetra
12:00-13:00 Hlé
13:00-15:30 Yfirlitssýning kynbótahrossa
  -Stóðhestar 5 vetra
  -Stóðhestar 6 vetra
  -Stóðhestar 7 vetra og eldri
15:30-16:00 Hlé
16:00-18:30 Milliriðlar A-flokkur gæðinga
18:30-19:00 Skeið 2 riðlar 150m og 250m
19:00-20:00 Hlé
20:00-20:45 B-úrslit Tölt
21:00-22:00 Sýning ræktunarbúa


Laugardagur 1. júlí:
Aðalvöllur:
09:00-9:40 B-úrslit Unglingaflokkur
09:40-10:20 B-úrslit B-flokkur gæðinga
10:20-11:00 B-úrslit Barnaflokkur
11:00-12:00 Hryssur - verðlaunaafhending
12:00-13:00 Hlé
13:00-14:00 Stóðhestar - 1. verðlaun fyrir afkvæmi
14:00-15:00 Hryssur - heiðursverðlaun
15:00-15:30 Hlé
15:30-16:30 Stóðhestar - verðlaunaafhending
16:30-17:15 B-úrslit Ungmennaflokkur
17:15-18:00 B-úrslit A-flokkur gæðinga
18:00-20:00 Hlé
20:00-20:30 100m skeið
20:30-21:15 A-úrslit Tölt


Sunnudagur 2. júlí:
Aðalvöllur:
10:00-10:45 A-úrslit Ungmennaflokkur
10:45-11:30 A-úrslit Unglingaflokkur
11:30-12:00 Úrslit í skeiði 150m og 250m
12:00-13:00 Hlé
13:00-13:45 A-úrslit B-flokkur gæðinga
13:45-14:15 Stóðhestar - heiðursverðlaun
14:15-15:00 A-úrslit Barnaflokkur
15:00-15:15 Hátíðardagskrá
15:15-16:00 A-úrslit í A-flokki gæðinga

Mótslok.