Söfn í Skagafirði
Nokkur skemmtileg söfn eru í Skagafirði eins og til dæmis Byggðasafnið í Glaumbæ, Vesturfarasetrið í Hofsósi og Minjahúsið á Sauðárkróki. Í Varmahlíð er staðsett Náttúrugripasafn Skagafjarðar. Einnig má telja til Hóla í Hjaltadal og Víðimýrarkirkju
Sýningar í Glaumbæ eru opnar frá 1. júní til 20. september alla daga frá 9-18. Hlutverk safnsins er að safna, skrá, varðveita og rannsaka muni og minjar genginna kynslóða úr skagfirskum byggðum og miðla upplýsingum um þann menningararf til samtímans og komandi kynslóða.
Í Vesturfarasetrinu á Hofsósi er margþætt og lifandi starfsemi. Í húsinu er fræðandi og skemmtileg sögusýning, ættfræði- og upplýsingamiðstöð, bókasafn, fyrirlestrasalur og verzlun. Eitt af meginmarkmiðum fyrirtækisins er að vinna að auknum samskiptum Íslendinga og afkomenda vesturfaranna.
Minjahúsið á Sauðárkróki var byggt sem vöruhús fyrir Kaupfélag Skagfirðinga árið 1949 og lengst af notað sem slíkt. Árið 1997 keypti Sauðárkróksbær húsið til starfsemi Muna - og minjanefndar, sem safnaði munum frá Sauðkrækingum og var eftir það nefnt Minjahúsið.
Náttúrugripasafn Skagafjarðar hefur að geyma safn þurrkaðra plantna, skófa, mosa og jurtasteingervinga, skordýra, eggja, dýrabeina, steina og bergkristalla. Vandað kuðunga- og skeljasafn. Fjölbreytt safn uppstoppaðra fugla og smádýra, margt í náttúrulegu umhverfi, hænsni við haug, refir við greni o.s.frv. Sýnishorn af sjófuglabjargi og fjöru með tilheyrandi fuglum, skeljum og öðrum náttúrufyrirbærum. Einnig er að finna ungan, uppstoppaðan ísbjörn í safninu. Margt spennandi er í safninu og er það opið frá 1. júní til 25. ágúst frá kl. 09:00-21:00 alla daga, yfir vetrartímann er hægt að hafa samband og þá er opið eftir samkomulagi.
.jpg)
Gilsstofa í Byggðarsafninu í Glaumbæ