Stóðréttir í Skagafirði

Mikil upplifun er að taka þátt hrossagöngum og er það sífellt að verða vinsælla hjá Íslendingum og erlendum gestum. Fjölskyldan að Flugumýri býður upp á hestaferðir í hrossasmölun. Réttir eru ein stærsta hátíð heimafólks á árinu. Það alltaf jafn spennandi fyrir bændurna að sjá hrossin sín aftir þegar þau koma til byggða eftir sumardvöl á fjöllum. Í réttunum er slegið á létta strengi og sungið og skemmt sér. Oft blómstrar hestaverslunin og margur gerir góð kaup. Einnig eru að sjálfsögðu fjárréttir í landshlutanum.
Stóðréttir í Skagafirði