Haustið með sýnu blíðviðri

Haustið er góður tími í sveitinni  með sínu bíðviðri eins og verið hefur nú síðustu daga. Því fylgja gangna og réttarstörf hér á norðurlandinu, þar sem við heimtum hross og kindur eftir frjálsræði  sumars á fjöllum. Okkar hross koma niður í Silfrastaðarétt og er það alltaf jafn skemmtilegt að sjá  og upplifa hvað tryppin hafa þroskast og styrkst  á þeim tíma sem þau eru á „fjallinu“, og er það einn af  fjölmörgu kostum þess að búa á norðurlandi að eiga kost á því að reka á fjall. 
Nú á haustdögum höfum við einnig kíkt í stóðréttir í Staðarétt, Laufskárétt  og Víðidalstungurétt, okkur til mikillar ánægju. Þar hefur verið fjöldi bæði af fólki og hrossum og einnig mikið glens og gaman á kvöldin.

Að öðru leyti gengur lífið vel og sinn vanagang hér á Flugumýri. Það hefur fækkað  á bænum frá því í sumar því börnin eru byrjuð í sínum skólum og dagarnir helst nýttir í tiltekt, viðhald og annan undirbúning fyrir komandi vetur. Í haust byrjaði Sigurður Rúnar í Menntaskólanum á Akureyri og kemur því einungis heim um helgar,  Eyrún er á öðru ári í Háskólanum á Hólum, þær yngstu Júlía og Þórdís eru sem betur fer enn í Varmahllð og Ásta er líka heimavið þar sem hún tók sér frí frá skóla og vinnur sem stendur á Hótel Varmahlið.

                                                          Palli, Júlía og Jón Hjálmar í Silfrastaðarétt

« Til baka