Frumtamningar Flugumýri

Nú fyrst í oktober eru komin á hús  4 stóðhestar á fjórða vetur og einnig önnur unghross sem við erum að byrja  að meðhöndla og temja og eru því krefjandi og spennandi tímar framundan.  Við tókum öll trypping frá 2 vetra aldri inn í eina viku en nú eru einungis þau tryppi inn sem eiga að verða reiðfær á þessu ári.  Í hópnum er meðal annars tvö stóðhestefni undan Víði frá Prestbakka, þeir Seiður undan Sif (bróðir Seiðs) og Arður undan Kommu. Einnig er þar  Kolskarar- og Glampasonurinn Káinn, ásamt Keilissyni.  Allir eru þessir folar verulega spennandi. Í hryssuhópnum er m.a. dætur Smellu, Báru og  Hendingar ásamt fleiri efnilegum unghryssum.

                                                                                   Stóðhestarnir Segull og Káinn

« Til baka