Vetur konungur á norðurlandi
Nú þegar haustið kveður, minnir veturinn óneitanlega vel á sig með tilheyrandi snjó og íllviðri. Nú er komin alhvít jörð hér í Skagafirði og spáð hvössu með snjókomu og við því búin að gefa hrossum út, til að létta þeim lífið, þrátt fyrir að nægur hagi sé fyrir þau. Lífið gengur vel í sveitinni þrátt fyrir neikvæðan fréttaflutning í fjölmiðlum og verðum við að vona að "kreppan" fari mildum höndum um okkur skagfirðinga þar sem og við höfðum kannski ekki fundið svo mikið fyrir auknum hagvexti undanfarin misseri. Siggi Rúnar var hins vegar fyrir þvi óhappi nú í vikunni að fótbrotna í körfubolta í MA. Það má kannski segja að fyrst þetta skeði á annað borð að þá sé tímasetningin nokkuð góð fyrir hann þar sem það er léttar að sitja á skólabekk fótbrotinn heldur en margt annað, auk þess sem útreiðarnar eru með minna móti hjá honum á þessum tíma.
« Til baka
|