Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir gamalt!
Á nýju ári er það helst að frétta að Eyrún er farin suður fyrir heiðar í verknám frá Háskólanum á Hólum til Ella og Viðju í Langholti og hlakkar til að takast þar á við ný verkefni næstu mánuðina. Í verknámið tók hún með sér stóðhestinn Arð frá Flugumýri sem er undan Kommu og Víði frá Prestbakka og hryssuna Golu.
Myndin er af Eyrúnu með stóðhestinn Atla frá Flugumýri