KS-deildin framundan...
KS deildin framundan..
Undankeppni KS-deildarinnar í hestaíþróttum fór fram þann 28 janúar s.l. í Svaðastaðahöllinni. Mikil aðsókn var í keppnina en barist var um sjö laus sæti í keppninni sem telur alls 18 keppendur. Alls voru 18 skráðir til keppni og þeir sjö sem komust áfram í aðalkeppnina eru:
Líney M Hjálmarsdóttir 
Árni Björn Pálsson
Páll Bjarki Pálsson
Erlingur Ingvarsson
Elvar Einarsson
Björn Jónsson
Ragnar Stefánsson
Þeir knapar sem unnu sér keppnisrétt frá keppninni í fyrra eru eftir stigum:
Mette Mannseth, Þórarinn Eymundsson, Bjarni Jónasson, Sölvi Sigurðarson, Ísólfur Líndal, Magnús B. Magnússon, Stefán Friðgeirsson, Ólafur Magnússon, Barbara Wenzl, Ásdís og Þorbjörn Matthíasson. Eyrún Ýr sem einnig hafði unnið sig inn í keppning boðaði forföll vegna þess að hún er stödd á suðurlandi í vetur í verknámi frá Háskólanum á Hólum.
Keppnisdagar í vetur verða eftirtaldir: 18 febrúar fjórgangur, 4. mars tölt, 18. mars fimmgangur, og 1.apríl smali og skeið.
« Til baka
|