Hörku keppni í KS-deildinni

Hörku keppni á fyrsta mótinu í KS deildinni.

Keppt var í fjórgangi í fyrstu mótaröðinni í KS deildinni í gærkvöldi. Eftir æsi spennandi og skemmtilega keppni varð það Þórarinn Eymundsson á Skála frá Skálakoti  sem stóð efstur og þar með pínulítið ríkari... Í öðru sæti var Sölvi Sigurðsson á Óðablesa og þriðji Mette Mannseth á Happadís. Uppúr B-úrslitum vann sig Ólafur Magnússon á Sörla, sem stóð sig með mikilli prýði. Aðrir sem komust í úrslit voru:

4. Ólafur Magnússon á Sörla

5. Bjarni Jónasson á Kommu frá Garði

6. Magnús B. Magnússon á Feng frá Sauðárkrók

7.  Árni Bjórn Pálsson á

8. Ísólfur Líndal

9. Erlingur Yngvarsson á Nótt frá Rangá

10. Páll Bjarki Pálson á Hreim frá Flugumýri

Mikil spenna er fyrir keppnina og hefur aðalsyrktaraðilinn Kaupfélag Skagfirðina staðið þétt við bakið á keppnishöldurum og aukið verðlaunaféð til muna frá fyrri keppni. Samningar hafa verið undirritaðir við RÚV um að sýna 20 mínútna þætti í Sjónvarpinu frá KS-deildinni og öðru hestatengdu efni en það er Árni Gunnarsson sem stýrir því verkefni. Verða þættirnir sýndir aðra hverja viku en hinar vikurnar verður sýnt frá Vís-deildinni sem fram fer sunnanlands.

 

« Til baka