Ismót á Langholtinu.

Ísmót Skörðugilsbænda – skemmtilegur viðburður á Þorra.

Ísmót sem  er haldið á tjörninni á Skörðugili  ár hvert var haldið laugardaginn 14. febrúar í blíðskapar veðri og stemmingu. Á  þann hátt komu bændur á Landholtinu sér í gírinn fyrir sameiginlegt þorrablót Skagfirðina sem er haldið þá um kvöldið. Ísmótið sem er liðakeppni milli nágrannabæja, þar sem hver bær sendir sitt lið er alltaf jafn skemmtilegur viðburður og erum við Flugumýrarfólkið svo heppin að fá að vera þátttakendur sem aðstoðarmenn Bjarna á Halldórsstöðum og að þessu sinni voru það systkynin Ásta, Eyrún og Sigurður sem tóku þátt. Var það vaskt lið Elvar og Fjólu sem sigraði eftir góða keppni þar sem var margt góðra hrossa. Að sigra er hins vegar alls ekki  aðalmarkmiðið mótsins, heldur að njóta þess að leiða saman hesta sína þar sem maður er manns gaman og sem betur fer er engin kreppa í Skagfirðingum hvað það varðar. Eins og jafnan buðu Skörðurgilsbændur einnig uppá veglegar veitingar í hesthúsinu bæði í byrjun og lok móts með kjötsúpu og öðru heimaframreiddu góðgæði –

« Til baka