Skín við sólu Skagafjörður

Nú í byrjun mars er daginn farið að lengja og sólin skín  hærra á lofti með degi hverjum. Nú síðdegis hefur sólin vermt með geislum sínum og fjörðurinn skartað sínu fegursta eins og oft áður.  Útreiðar ganga því vel þessa dagana í frábæru reiðfæri á snæviþakinni jörð. Það eru þau Ásta Björk og Palli sem sjá að stórum hluta um útreiðar í vetur, auk þess sem Sigurður Rúnar kemur heim frá MA um helgar og er þá liðtækur ásamt mér (Önnu). En marga daga fer þó hluti af deginum hjá mér í skutl í tónlist og íþróttir hjá þeim Þórdísi og Júlíu sem æfa frjálsar íþróttir, fiðlu og þverflautu af miklum krafti.

Bærinn Flugumýri stendur við rætur Glóðafeykis

 

Ásta Björk á Brynjari sem hún stefnir á sem sinn framtíðar keppnishest

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

                                     

 

 

« Til baka