Nýtt líf! Einstakar myndir

Vorin eru sennilega mest spennandi tíminn í hrossarækt, stærstu mótin framundan og hestarnir í topp formi, tilbúnir í slaginn fyrir átök sumarsins. En vorin eru sérstaklega spennandi að því leyti að merarnar eru að því komnar að kasta og er það ógleymanleg upplifun fyrir þann sem það sér. Nú í vor var ferðamaður á ferð við Flugumýri og náði einstökum myndum af þessu sjónarspili. Á nýju heimasíðunni okker  er að finna skemmtilegar myndir af ýmsu sem tengist hestamennsku og hestum í lífi og leik. Hestamyndir

 Myndir af meri að kasta

« Til baka