Mikið að gera! Gestkvæmt að Flugumýri
Undanfarið hefur verið mikið að gera hjá heimilisfólkinu á Flugumýri, ekki einungis stendur undirbúningur fyrir Landsmót sem hæst heldur einnig hafa margir hópar komið í “Heimsókn á Hrossaræktarbú” sem hefur slegið í gegn í sumar. Þar er tekið móti hópnum og þeir fá að kynnast broti af því besta í Íslenskri hestamennsku hjá heimilisfólkinu, ásamt því að fá stutta kynningu um sögu sveitarinnar. Að því loknu er gestum boðið upp á kaffi og með því eða gómsæta kjötsúpu að hætti hússins. "Heimsókn á Hrossaræktarbú"

« Til baka
|