Mikið um að vera á Flugumýri þessa daganna!
Héðan í sveitinni er allt gott að frétta.. Haustið gengið í garð og búið að sleppa öllum hestunum..
Siggi Rúnar var að koma frá Bandaríkjunum, úr 3 vikna ferð. Flug hann út til Boston 21 sept, og keyrði alla leið yfir til Alaska með Berni vini okkar sem var að kaupa af Sigga, hana Prinessu og hennar afkvæmi, þau Rauðhettu 2. vetra undan Þokka frá Kýrholti, Njáll veturgamall undan Adam frá Ásmundarstöðum og Farandi sem fæddist í sumar undan Þórodd frá Þóroddsstöðum. Var þetta mikið ævintýri fyrir hann og voru þeir á ferðalagi í 21 dag samfleytt, hann semsagt lenti hérna á Íslandi núna síðastliðin Laugardag. Svo núna er það bara lærdómur og endalaus lærdómur framundan hjá þessari elsku og engin miskunn!
Ásta Björk er alltaf út í Danmörku í íþróttaháskóla í Álaborg og líkar það rosa vel. Byrjaði hún á almennri braut en hefur framlengt nám sitt og fært sig yfir á fitnessbraut og stefnir á að vera úti fram á næsta vor. Mamma er í þessum skrifuðu orðum að bakka ofan í tösku og ætlar að skella sér til Svíðþjóðar á morgun, var henni veittur svokallaður Leonadó styrkur og er ætlunin að ferðast um Svíðþjóð og skoða ferðraþjónustunabú þar, svo er ferðinni heitið til Danmerkur í heimsókn til Ástu Bjarkar. Ég er alltaf á Hólum og stunda þar nám á fyrsta ári á hrossaræktarbraut og líkar það svona gríðarlega vel.
Frekari fréttir og myndir á næstunni!
Kveðja Eyrún Ýr
« Til baka
|