Seiður frá Flugumýri II fær frábæran dóm!
Seiður frá Flugumýri II hlaut í dag frábæran kynbótadóm, ae. 8,39, aðeins 4v. gamall. Seiður er undan hinni mögnuðu hryssu Sif frá Flugumýri II og Gustssyninum Kletti frá Hvammi. Seiður hlaut mjög jafnan og góðan dóm en hann var sýndur af Mette Mannseth á héraðssýningu kynbótahrossa á Sauðárkróki. Fyrir byggingu hlaut Seiður 8,48 þar af 9,0 fyrir háls/herðar og bóga og einnig fyrir samræmi. Fyrir hæfileika hlaut Seiður 8,33 þar af 9,0 fyrir stökk, 8,5 fyrir brokk og 8,0 fyrir tölt og skeið. Sannarlega frábær dómur hjá fjögurra vetra fola.
« Til baka
|