Landsmótsfarar

Nú líður senn að Landsmóti og úrtökur hestamannafélaganna afstaðnar.

Heimilisfólkið á Flugumýri II lét sitt ekki eftir liggja og tók þátt í úrtöku hestamannafélagsins Stíganda í Skagafirði. Skemmst er frá því að segja að þau sem voru skráð til leiks unnu sér öll inn þátttökurétt á Landsmótinu á Hellu.

Páll Bjarki Pálsson mætir til leiks á hinum 14v Boða frá Flugumýri II í A-flokk gæðinga. Boði er feikna viljugur og rúmur alhliðahestur sem er til alls líklegur en það verður við ramman reipa að draga því 99 hestar eru skráðir til leiks og feikna margir mjög sterkir.

 Í A-flokki gæðinga eru einnig skráðir til leiks Seifur frá Flugumýri II og Jón Ó. Guðmundsson en Seifur er albróðir hinnar brúnskjóttu gæðingshryssu Sifjar frá Flugumýri II.

Í ungmennaflokki keppir Eyrún Ýr Pálsdóttir á Klöru frá Flugumýri II. Klara er 9v undan Kolskör frá Gunnarsholti og Gust frá Hóli.

Í unglingaflokki keppir Sigurður Rúnar Pálsson á stóðhestinum og Kormákssyninum Gletting frá Steinnesi .

Í flokki 4 vetra stóðhesta mætir Seiður frá Flugumýri II sem hlaut á dögunum frábæran dóm, ae. 8.39, og kemur inn á Landsmót með næst hæstu einkunn. Sýnandi Seiðs er Metta Mannseth.

Það er ljóst að baráttan verður hörð á Landsmótinu því aldrei hafa fleiri keppendur verið skráðir til leiks en það er gaman að segja frá því að keppnishestar okkar eru allir úr eigin ræktun eða útaf eigin ræktun sem gerir þetta ennþá meira spennandi fyrir okkur.

 

 

« Til baka