Gisting í Skagafirði
Skemmtileg gistiaðstaða í Skagafirði fyrir einstaklinga, fjölskyldur og minni hópa.
Til útleigu er 70 m2 íbúð, þrjú tveggja manna herbergi, eldhús og baðherbergi með sturtu.
Um Flugumýri
Flugumýri er fornt höfuðból í hjarta Skagafjarðar, hins þekkta hrossaræktarhéraðs, Flugumýri heitir eftir hryssu Þóris dúfunefs sem var hvötust allra hrossa. Fjölskyldan á Flugmýri II hefur náð framúrskarandi árangri í hrossa rækt á íslenska hestinum. Flugumýri var kosið ræktunarbú ársins 2001 yfir landið, auk fjölda annarra viðurkenninga. Boðið er uppá hestasýningar með sögukynningu, hestaferðir og heimsókn á hrossaræktarbú.
Næsta þéttbýli/sundlaug: Varmahlíð 7 km
Næsti golfvöllur: Sauðárkrókur 33 km
Gestgjafar: Eyrún Anna Sigurðardóttir og Páll Bjarki Pálsson
Vinsamlegast hafið samband við heimilisfólkið á Flugumýri.